Persónuvernd í áskrift hentar þeim sem vilja stjórna persónuverndinni með einföldum og árangursríkum hætti og hafa aðgang að sérfræðingi í leiðinni.
Þeir sem koma í persónuvernd í áskrift fá aðgang að kerfinu Wired Relations. Þeir velja jafnframt hversu marga tíma þeir vilja eiga inni hjá sérfræðingi okkar í hverjum mánuði, gjarnan 5 eða 10 klst. Tímann er til dæmis hægt að nýta í kennslu á kerfið, skjalagerð, fá álit við fyrirspurnum og fleira.
Í persónuvernd í áskrift er greitt lágmarksgjald sem er annað hvort 9.450 kr. + vsk. á mánuði eða 89.400 kr. + vsk. fyrir fram fyrir árið. Viðskiptavinur greiðir svo einungis fyrir þá tíma sem hann nýtir hjá sérfræðingi okkar í hverjum mánuði. Verð fyrir hvern tíma er breytilegt eftir því hvað viðskiptavinur velur marga tíma en er hæst 22.900 kr. + vsk.
Fyrir frekari upplýsingar um persónuvernd í áskrift er hægt að senda okkur línu í gegnum netfangið sekretum@sekretum.is. Hægt er að bóka kynningu á Wired Relations með því að smella hér.